|
Mallorca ;D
Fyrir 1661 dögum
|
13.06.2007 12:46:52 / SignýEva
Hæ elskurnar
mínar sakna ykkar sko þvílíkt og annað eins... ótrúlega
fyndið að ég sé á netinu hér, þar sem að þetta getur varla
kallast net hehehe það er svo hægt og bara í einni tölvu
hérna á hótelinu, aðeins verra! en ég er einmitt núna að
passa lobbýið svo að blogg fáið þið 
sakna ykkar svo þvílíkt, er ekki
málið að fara hittast bráðum? þar sem að við förm ekki til benidorm
5 júlí.... þá er svo miklu lengra þangað til við hittumst, er samt
ekki stefnan en tekin á bubbu ?? ég er allavega orðin heavy
spennt sko, við ætlum að vera saman í tjaldi !
en hérna stelpur, einn daginn
þegar þið eruð í fríi, eruði þá ekki til í að koma hingað í
heimsókn? hehe þetta er ekkert þaað langt, og ég er yfirleitt að
vinna frá 07:00 - 15:00 svo ég á bara allan daginn eftir... ýkt næs
ef þið kæmuð, eða við myndum hittast á miðri leið bara aðeins til
að hittast og spjalla um allt og ekkert bara þegar þú kemur heim
Særún???? ha? hehehe
ehm.. veit eiginleag ekkert hvað
ég á að segja... ótrúlega fáir inn á msn akkurat þegar ég kemst
online, svo mér leiðist pínku, en á ég að segja ykkur....mér líður
sko ógeðslega vel (you know ) hehe allt í bestasta lagi sem er sko
bara gott! hehe
æj vá, þetta er bara orðið bull,
vildi bara kasta kveðju á ykkur elskurnar mínar og hlakka til að
hitta ykkur, sem fyrst!!!!!!!!!!!!!
endalaust knús og kossar, lovelovelove;*<3
SIGNÝEVA!
»
16.05.2007 10:07:24 / særun
Jæja.. þá er
loksins komið að því. Við erum komnar í sumarfrí og leiðinni
liggur heim í dag. Ég stoppa reyndar stutt heima þar sem ég
flýg til Danmerkur árla föstudagsmorguns og mun eyða þar
næstu vikum að passa litla yndislega frænda minn. Svo kom
heim heim frá Danmörku og fer þá til Benidorm með mínum fögru
dömum Guðbjörgu Evu og Signý Evu.
Ég, Guðbjörg og Signý fórum
uppí bústaðinn hennar Guðbjargar, (sem er fullur af minningum síðan
við vorum litlar) til að læra. Það var svo gott veður að við
fórum útí laut í sólbað, fórum svo í ''pottinn'' og höfðum það
kózý! Við lærðum ekki mjög mikið á mánudeginum útaf góða veðrinu,
en vorum ógeðslega duglegar á þriðjudeginum og lærðum og lærðum
langt fram á nótt. Við förum á eftir að fá útúr prófunum sem er
búið að fara yfir, ég er reyndar búin að ná íslensku.. ég get ég
þakkað Magneu fyrir það.. og ætla ég líka að kaupa eitthvað handa
henni úti í Danmörku.
En nú er þessi partur af
lífinu lokið og kveð ég Menntaskólann að Laugarvatni með bros á
vörum. Ég ætla samt að vera dugleg að mæta áböllin hér næsta
vetur.. og kíkja á þetta lið hérna 

Bæ herbergi 243 kös ;*
Særún
»
10.05.2007 21:48:02 / SignýEva
jæja, ég ákvað að taka mér bessaleyfi og blogga! hehe, því röðin
á þessu öllu saman hefur e-ð farið úrskeiðis svo ég veit ekkert
hvenær á að koma að mér.
Margt hefur svo sannarlega gerst síðan seinast var bloggað, við
allavega erum byrjaðar í prófum og gengur það [vonandi, pottþétt]
vel. Reyndar er erfiðasta prófið eftir, en við lærum bara extra
mikið fyrir það, er það ekki stelpur? sumarið er svo
sannarlega farið að láta sjá sig og er veðrið svo ofboðslega
fallegt og gott og þægilegt eitthvað.... maður svona hálf öfundar
litlu krakkana hérna í götuni sem geta verið útá trampólíni að
hoppa og þurfa ekki að hugsa um námið, ah....væri það gott?
en það má víst ekki, þarf að læra.
Ég get alveg sagt það að undanfarið hafa verið mjög skrítnir
dagar, ekki beint erfiðir þó svo það ætti kannski að vera en maður
allavega er þakklátur fyrir vini sína, vinir eru svo
ómissandi...vá! hehe eins og í gær, var ég í mínum bestu makindum
að sofa, í frekar langan tíma [aðeins vegna þess ég hafði sofið svo
lítið nóttina áður útaf ég þurfti að læra svo mikið fyrir prófið ]
og hérna ég svaf og svaf, svo kemur bróðir minn inn til mín og
segir mér að það sé verið að spyrja eftir mér........og ég bara
svona; oh nei! hehe vissi náttúrulega ekkert hverjir voru að spyrja
eftir mér eða í hvaða erindagjörðum fólkið var..... tók símann minn
og þar var alveg heill hellingur af missed calls ! sá þá að
Guðbjörg Eva hefði verið að hringja alveg óspart í mig labbaði
fram og þar stóðu stúlkukindurnar í dyragættinni,
Særún&Guðbjörg. hehehe ég sko nýývöknuð, hehe og bara hæ! þá
kom Guðbjörg; við erum að fara á Selfoss og þú átt að koma með!
hehehe ég bara já okei? hehe
Fékk ég þó smá tíma til að skipta um föt þar sem náttfötin
voru ekki alveg að gera sig, fóru þær einhvern smá rúnt og komu svo
að ná í mig..... fórum á Selfoss, á pakkhúsið að horfa á man.utd -
chelcea [sem var auðvitað tilgangslaust því man.utd var og er
auðvitað meistarar gloryglory] allavega, pakkhúsið var ekki að
gera sig....veit ekki hvort það var bara þetta tiltekna
miðvikudagskvöld eða hvort þjónustan sé virkilega lélegust á öllu
landinu, jésús minn!
yfir í annað, ég ætlaði bara rétt að láta vita af okkur
hér. Tók það að mér, við erum semsagt heilar á húfi... þetta alveg
að verða búið og kveðjustundin alveg að koma, kvíður ekkert smá!
Særún fer til Danmarkar í heilan mánuð, ég fer vestur alveg þangað
til benidorm ferðin verður og Guðbjörg fer heim til sinna heima -
Sandgerðis. Sem er ekkert nema gott, nema við hittumst ekkert
fyrren eftir mánuð, hversu ömurlega ömurlegt verður það????? okkur
á eftir að blæða, þetta verður svo sárt.  hehe
heyriði, held ég verði bara að fara slá botnin í þessa ritgerð
hér. Halda áfram að læra, auðvitað gangi ykkur öllum vel það sem
eftir er af prófunum, og skemmtiði ykkur óóóóhemjuveel og bara
klikkaðslega vel í sumar!!!!!!!! ég held að þetta sé sumarIÐ! finn
það bara svona á lyktinni, allir brosandi og glaðir og svo
sjáumst við öll hress, sæt og kát á BUBBU ! wooohooo ;D ....vá
hvað á eftir að verða gaman að sjá alla þá<3!
lifið heil, lovelove
Signý Eva Auðunsd.
»
03.05.2007 08:55:26 / særun
Afmælisbarnið
Signý Eva Auðunnsdóttir meðlimur
þessarar síðu átti 17 ára afmæli í gær og er gellan því komin með
bílpróf.. enda liggur leiðinni á Selfoss í kvöld.
Til hamingju elsku
sæta mús ;*
En annars þá
styttist í prófin og sumarfríið.. Ég efast um að við munum vera
duglegar að blogga næstu tvær vikur, því fyrsta prófið er á
mánudaginn. Svo styttist líka alltaf í að ég fari til Danmerkur..
og það styttist líka í okkar Benidorm ferð og er spennigurinn
orðinn svo mikill að við eyðum nóttunum í að naga táneglurnar af
hvor annari! En við förum bara í fótsnyrtingu fyrir ferðina..
Takk
fyrir mig í bili.. Særún Guðmunds (sem er að komast í
sumarskapið)
»
27.04.2007 09:55:06 / gugga
Góðan daginn..
Jæja, það er víst komið að mér að blogga.
Þá fer skólinn að styttast, aalveg að verða búið.. Ég er sko að
deyja úr spenningi, get ekki beðið, tel liggur við mínúturnar
niður. En þessa vika er búin að vera eins og 5 vikur að líða, svo
langt síðan við höfum verið heila viku.. hehe. Þessi helgi verður
líka löng, frí mánudag og þriðjudag Flott það..
En hún Signý Eva mín náði verklega prófinu í gær, til
hamingju með það elskan ;* Hún fær semsagt bílpróf á
miðvikudaginn í næstu viku, og á augljóslega líka afmæli þá Svo
bara Seeelfoss...
Svo í þarnæstu viku byrja prófin, allt að koma sko.. er geðveikt
kvíðin, 1-2 föll á leiðinni býst ég við! Svo bara suuumar!!!

En stelpur, hvað verður með þennan hitting ? Verður eitthvað úr
honum ? 
Það gleymdist alltaf að setja inn myndirnar af síðasta balli, en
þær fara örugglega að koma!
En hér er ein mynd af ballinu, HEHE best! Kodak moment ársins!

Flottar frænkur..
Svo ein af litla modelinu mínu :
)

Sætastur :*
Guðbjörg Eva
»
23.04.2007 09:08:31 / SignýEva
HÆHÆ!
jæja, ákvað að
blogga svona í mínu sakleysasta... fólk er e-ð voða spennt að
blogga á þessari síðu, bara troða sér framfyrir og læti hehe en
það gerir ekkert til.
Jæja, við mættum
ýkt hressar í skólann í dag og svo bara fór kennarinn veikur heim
og við áttum bara að læra í stofunni í allan dag en
Særún&Guðbjörg vildu endilega fara uppá vist að leggja sig, og
hér erum við. Einmitt núna eru Guðbjörg&Særún eitthvað að
spjalla og ég ligg hérna á milli þeirra fínt
það...
Úff, svo eru prófin
að byrja. Ekkert smá stutt í þau og á eftir þegar við erum
búnar að sofna oog vakna þá förum við að læra.....veitir ekki af,
gengur ýkt illa en þetta bjargast, eins og allt
annað.
Heyrðu, aðeins 73
dagar þangað til brottförin er....hehe ekkert smá stutt og ennþá
minna eftir af skólanum. Það er samt helvíti næs og maður kvartar
ekkert.....samt er ömurlegt að ég eigi ekkert eftir að hitta
stelpurnar, bara benidorm ferðina og svo ekkert meir í sumar
frekar fúlt, en svo verða þær duglegar að koma hingað á böll og ég
til þeirra
jæja, ball næstu
helgi og löng helgi. Stelpurnar ætla ekki, ekki sátt með það
ekkert víst ég nenni þá, er líka að vinna en ég ætla að sjá til..
bara ef það væri ekki löng helgi og Guðbjörg væri ekki að vinna, þá
kæmu þær hehe eða vonandi...
ah, held ég verði
bara að slá botninn í þetta blogg.....ekkert voðalega innihaldsríkt
en langaði bara að blogga sem er btw mjög leiðilegt! en takk
samt
Signý Eva,
BÆBÆ 
»
16.04.2007 20:08:42 / særun
Ég veit eigilega ekkert hver á að
blogga næst í þessari röð okkar svo ég verð bara frek og treðst
hérna með eitt stykki blogg.
Jæja þá styttist óðum í
sumarfríið, og ég get ekki beðið! Vona að tíminn verði
fljótur að líða, en það er nú nóg að hugsa um núna.. Þessi blessuðu
próf sem eru að gera okkur frænkur gráhærðar. Erum búnar að vera
voða duglegar að læra í dag. Svo kláruðum við líka ritgerðina okkar
fyrir stuttu, alltaf svo mikill dugnaður í okkur.. Þetta rennur í
blóðinu. (Æjæ, nú líður yfir Guðbjörgu) En svo fer ég út tveimur
dögum eftir að ég fer í sumarfrí og verð útí þar til í
endaðan júní og kem þá heim í smá stund. Reyni kannski
að vinna aðeins og fer síðan til Benidorm 5. júlí. Hlakka
alltof mikið til sumarsins.. Laumast stundum til að hlusta á
Here comes the sun með Bítlunum með sólgleraugun á höfðinu.. ooh
sumarið ;*
Sumar, sumar,
sumar, sumar.. Get ekki hugsað um annað!
Svo er maður bara að byrja að vinna
í búðinni. Byrja á fimmtudaginn og það besta er að ég er með
Guðbjörgu á vöktum svo það verður þægilegt. Hún verður örugglega
geðveik á mér fyrst þegar hún er að kenna mér, en það verður bara
að hafa það.. 
Svo er sumardagurinn fyrsti á
fimmtudaginn. Þannig við förum heim á miðvikudaginn og Unnur
pæjulíus verður að vera dugleg að gera ritgerðina sína svo við
getum lagt af stað snemma. Allir að hvetja hana áfram
hehe..
It's only love and that is all, why
should I feel the way I do, it's only and that is all.. But it's so
hard lovin' you... Ohh Bítlarnir..
Bítlarnir í sólinni.. Gerist
það betra ?
Ég elska sólina, og sumarið
og flugurnar.. nei!
Særún kveður í sumarfíling..

»
10.04.2007 22:27:12 / gugga
»
03.04.2007 18:34:15 / særun
Ég vil byrja á því að spurja stelpur
sem skoða þessa síðu sem voru það heppnar að vera meðlimir af
bekknum 10. KJJ. Eruð þið ekki til í að fara að hittast bráðum ?
Það eru nokkrar að fara í fótboltaferð til Spánar núna á
fimmtudaginn held ég (helvítis tíkurnar)! En við verðum að fara að
hittast eftir það. Allavega þær sem eru til í þetta rétta upp hönd

Guðbjörg - Særún - Habbý 10.
bekk
Særún - Eydís 10. bekk
Magnea, Diddi, Halldóra, Guðbjörg,
Særún, Habbý og Ragga
(Finn ekki myndir af fleiri
stelpum, en vona að sem flestar séu til í þetta)
Það er nokkuð búið að gerast frá
því ég bloggaði síðast. Fór t.d. í aðgerð 26. mars og gekk það
bara vel. Er að jafna mig og er eigilega bara orðin góð núna.
Tölvan mín fór í viðgerð og er núna orðin eins og glæný, Guðbjörg
vann í bingó! hehe, fór í bústaðardjamm, það var árshátíð og ML
ball, fékk mér lokk í nefið í fjórða skipti
og margt fleira..
3 ár síðan ég og Guðbjörg
fermdumst í dag. Oh minningar :*´
-Særún Guðmunds
»
28.03.2007 22:24:33 / SignýEva
jæja,
hæhæ
Já, ég átti víst að blogga. Það er
víst einhver röð á þessu hehe sem er í lagi, Særún er næst! þá er
ég ekki alveg aftur í bráð...
Það er svosem lítið frá að segja,
nema það er búið að vera klikkað mikið að gera hjá mér úr
leikritinu! vá sko, hef aldrei upplifað jafn busy daga....er sko
varla búin að hitta stelpurnar í tvær vikur. Er núna í fyrsta
skipti uppá vist eftir að leikritið byrjað, reyndar er það búið
núna.
Allavega, loksins þegar ég er
komin hingað ýkt hress þá er bara Dutta og Særún farnar svo ég
og Guðbjörg erum hérna einar, sem er í fínu hún fer reyndar á
morgun hehe geðveikt vælublogg hehe við ætlum síðan bara
að hittast ótrúlega hressar eftir páska, og kannski bara um
páskanna??? hmm... ef sjúklingarnir ráða við það! hehe vonum
það.
Annars ætlaði ég bara að standa
við mitt og blogga, veit þetta var slappt en það
sleppur.... Svo bara minna ykkur
stelpur mínar, aðeins 99 dagar í fokking draumaferð allra tíma
spenntar??
Var þetta nógu
gott?
-Signý Eva
»
19.03.2007 17:59:40 / gugga
Hæhæ 
Já það eru komnir nýjir meðlimir á síðunni hérna með okkur, þær
Kristrún Anna og Signý Eva. Bjóðum þær velkomnar 
Já þá er árshátíðahelgin búin, hún var alveg æði 
Þetta byrjaði allt á föstudaginn. Vorum búin í skólanum kl 12 eins
og venjulega og þvílík stemming í fólki, Rakel kom til mín um 2
leitið og gerði ýkt flotta greiðslu í mig.
Svo mættu allir kl 7 í mat, Örn Árnason var veislustjóri, enda var
líka ekkert lítið hlegið yfir matnum, bæði af kennurunum og honum
sjálfum ;D
Í forrétt fengum við einhverskonar lax, fyrst þegar ég heyrði lax,
þá langaði mér ekkert í en svo smakkaði ég, þá var þetta bara mjög
gott.. Svo kom aðalrétturinn, fengum eitthvað kjöt og líka
kjúkling, svo í eftirrétt kom einhverskonar búðingur eða ís eða
eitthvað! Þetta var allt mjög gott En kennararnir voru bestir,
voru með atriði um hvernig þau myndu ekki vera í skólanum!
Ofur fyndið En allavega þá var ýkt mikið um
myndatölur frammi og við stelpurnar létum
taka mynd af okkur og svona : ) Svo endaði þetta kvöld með
harmoniku dansiballi sem var alveg ógeðslega skemmtilegt, ég var
reyndar einhvað svaka neikvæð fyrir það ball, ætlaði bara að fara
heim á föstudaginn og koma svo aftur á laugardaginn, en eins gott
að ég gerði það ekki! Skemmti mér alveg konunglega.
Svo á laugardaginn vöknuðum við um 12 leitið og fengum okkur bara
að éta og svona, græjuðum okkur svo á skólaleikritið "Í fyrrasumar"
sem var í Aratungu. Alveg ógeðslega skemmtilegt leikrit, Silja og
Andri alveg að fara á kostum þarna En svo verður leikritið líka
sýnt hér útum allt suðurland og í Reykjavík, endilega allir að mæta
og sjá 
En eftir leikritið voru gestirnir okkar komnir, semsagt Hannes,
Ástrós, Fríða og Finnbjörn Þá fór maður bara að græja sig á ball
og svona. Svo byrjaði allt stuðið um 9 leitið, og svo byrjaði
ballið um 11-12 Þetta var besta ballið fannst mér, ég skemmti
mér alveg geðveikt vel, skemmti mér bæði mjög vel hér í
vistarpartýinu og á ballinu, óendalega skemmtilegt ;D Daginn eftir
vöknuðum við öll hress, eða svona! Um daginn lágum við bara inní
herbergi og gerðum ekki mikið, svo um kvöldið fórum við í Tjaldó og
fengum okkur að borða. Stuttu eftir það fóru gestirnir, það var
ekki alveg besta færðin, Hellisheiðin lokuð og svona, þannig þau
fóru Þrengslin,en það gekk ágætlega, sem betur fer.
Í dag erum við bara búnar að liggja uppí rúmi að horfa á video og
sofa, en Signý fóru fyrir stuttu að sýna, aftur í Aratungu 
En það eru komnar nýjar myndir síðan á Árshátiðinni, og svo eru
líka myndir síðan við vorum einhvertímann í skólanum og eitthvað.
Komum svo með myndir af ballinu bara bráðum 

Flottar : )
En er farin í mat,
Guðbjörg Eva 
»
15.03.2007 21:42:35 / Dutta
»
12.03.2007 22:32:50 / gugga
Góða kveldið 
Þá er víst komið að mér að blogga. ég hef nú ekkert svakalega mikið
að segja, en ég reyni að ná eitthverju upp úr mér..
Það er nú ekkert mikið að frétta en kannski eitthvað samt..
Alla síðustu viku vorum við ógeðslega feitar og lágum örugglega
alla vikuna uppí rúmi með snakk og kók og vorum í sims! En á
þriðjudaginn var bekkjarkvöld hjá okkur. Fyrst þegar það var sagt
við mig að það væri bekkjarkvöld þá hugsaði ég bara um venjulegt
bekkjarkvöld, svona eins og í grunnskóla. (Er ekki að segja að það
sé eitthvað leiðiilegt), en allavega þá mættum við kl 6 og fengum í
forrétt djúpsteikta camembert osta, svo kom aðalrétturinn, fengum
nautakjöt með piparsósu og grillaðar kartöflur. Ýkt gott alveg
En svo voru kosningarnar, og ég fékk bros 1. bekkjar ;D Eftir
kosningar kom bestasti eftirréttur í heimi, fengum einhverskonar
hrís-ísterta með súkkulaði og svona jarðarber oná, mmm! Óendanlega
gott sko! Mjög skemmtilegt kvöld Svo á miðvikudagskvöldið var
bara allt brjálað hérna á vistinni, allir brjál sko! Ég héllt að
Dutta og Snorri ætluðu að rústa vistinni, hehe. En það
var ógeðslega gaman Það hefur ekki oft verið svona gaman hér á
vistinni.
Ég kom heim svo síðasta fimmtudag. Á föstudaginn fór ég að vinna kl
5, svo um kvöldið horfðum við bara á video og steinrotuðumst yfir
því. Svo var ég að vinna yfir alla helgina.
Svo núna er svaka stemming hér útaf árshátiðin er næstu helgi!
Allir búnir að fá fína kjóla og svona, nema ég! =( Vona að ég reddi
þessu!
Árshátiðin er yfir heila helgi. Þetta byrjar allt á föstudaginn með
mat og svona, allir rosa fínir, svo er dansiball, semsagt
harmonikuball eftir á, sem verður áfengislaust. Svo á laugardeginum
er frumsýningin á leikritinu og svo ball um kvöldið, sem er þá ekki
áfengislaust Fríða, Hannes og Ástrós koma úr Sandgerði, svo
kannski fl. Þetta verður örugglega ýtks skemmtilegt 
Svo eftir 2 vikur byrjar páskafríið, get ekki beðið, tel liggur við
niður mínoturnar.
Særún fer reyndar viku fyrr í páskafrí, því hún er að fara í
aðgerð! En samt heppin að fara fyrr..
En ætla enda þetta á mynd af æðislega bekknum okkar 

Og ein grettumynd 

Flott En Snorri og Árni eitthvað að ruglast hvenar á að gretta
sig og hvenar ekki, hehe.
Eitt áður en ég hætti,
Signý, farðu að koma uppá vist!
Bless :*
Guðbjörg Eva
»
07.03.2007 15:05:02 / særun
Síðustu helgi kom elskulega systir mín
í heimsókn til mín á laugarvatn. Hún kom á
föstudagskvöldinu og við tókum því bara rólega með heitt
te og svona. Daginn eftir vöknuðum við bara
snemma til að fara í bæinn. Ætluðum á Players til
að horfa á leikinn en þar var alltof troðið! Þannig við fórum
frekar á Áttuna í Hafnarfirði. Það vorum við einu stúlkurnar
en það skipti svosem ekki máli.. Við fengum okkur hamborgara
og horfðum á leikinn sem var algjörlega Liverpool í hag fyrr
en á helví*** 91. mínútu.. ekta Manchester United! En
allavega þá studdum við okkar menn frá upphafi til enda
Við kíktum svo í kringluna þar sem maður rakst örugglega á
helminginn af ML-ingunum þar á meðal hana Guðbjörgu Evu.. sem
fór að monta sig af helvítis leiknum! Talaði ekkert frekar
við hana.
Við fórum svo
aftur á Laugarvatn og horfðum á Singing in the rain sem er
ógeðslega skemmtileg. Kíktum svo niðrí Tjaldó, fengum svo lánaða
Beauty and the Beast hjá Glódísi.. Hafði ekki horft á hana geðveikt
lengi Elska þessa mynd. Við horfðum á Gone with the wind eftir
það en vorum svo þreyttar að við horfðum bara á fyrri partinn og
seinni partinn daginn eftir. Svo á sunnudeginum kíktum við á
Selfoss og fengum okkur að éta og svona.
Takk æðislega
fyrir helgina Fríða mín. Það er alltaf jafn gaman að hafa smá
systradag 
Í gær var bekkjakvöld og var ótrúlega gaman.
Fékk bestu ístertu allra tíma! Allir að taka tækifærið og
óska Guðbjörgu til hamingju með titilinn ''Bros
1.bekkjar'' Signý kom svo með okkur uppá vist eftir
það. Við fórum að horfa á Ghost og svo var hún frekar rispuð
þannig það varð smá líkamsrækt þarna með.. hehe þið vitið
hvað ég á við stelpur gaman.. Svo var hent á fóninn
bjráluðu technó-i og við dönsuðum úr okkur líftóruna.. Aðeins
að hita okkur upp fyrir Benidorm sem er eftir 120 daga!!

Hér kemur ein
saga fyrir ykkur vitleysingjana:
Einu sinni var lítil stelpa sem hét Signý. Henni
fannst rosalega gaman að hoppa í rúmum.. en það sem Signý
litla vissi ekki er að maður þarf að vera mjög einbeittur til
að halda jafnvægi þegar maður er að dansa við techno í rúmi!
Signý var rosa að lifa sig inní dansinn þegar aumingja litla
stúlkan missir jafnvægið og hrasar. Hún skellur fyrst með
rassinn á gluggakistuna, svo á ofninn og svo endaði hún
auðvitað kramin í horninu. Greyið litla Signý
sagðist líklega vera rófu- brotin. Veit ekki
alveg hvernig það virkar. En vidli bara deila þessari sögu
með þjóðinni..
Jeii.. Förum
heim á morgun 
-Særún
»
01.03.2007 21:54:19 / gugga
»
Síður: 1 2 3 4
|
|